Fyrsta tæknitátukvöldið var stórvelheppnað. Um 20 tátur mættu og blönduðu geði. Við þökkum fyrir síðast og hlökkum til að sjá ykkur á næsta tátukvöldi.
Talandi um það þá er hér dagskráin fyrir veturinn:
Desember: Öryggistátur - Fjallað verður um notkun upplýsingatækni í björgunarsveitum.
Janúar: Hefðartátur og ungtátur - Þær sem ruddu brautina og þær sem eru að bætast í hópinn segja frá sinni upplifun.
Febrúar: Listatátur - Fjallað verður um notkun upplýsingatækni í listum.
Mars: Rannsóknatátur - Hvað eru tátur í akademíunni að rannsaka?
Apríl: Lífstíll tæknitátunnar - Tölvutöskur, farsímar, tölvur etc fyrir tátur.
Maí: Frumkvöðlatátur - Tátur sem hafa stofnað og rekið sín eigin fyrirtæki lýsa reynslu sinni.
Listinn er örlítið breyttur frá því sem tilgreint var á kvöldinu (eitthvað skolaðist til í minni fortáta fyrir fundinn).
Hljómar spennandi, ekki satt??
Undirbúningur fyrir næsta fund er að hefjast og við sendum ykkur stað og stund eins fljótt og við getum svo að þið getið farið að skipuleggja ykkur.